Körfuknattleiksdeild ÍR mun laugardaginn 25.febrúar halda árgangamót fyrir alla ÍR-inga í Íþróttahúsi Seljaskóla og hefst það stundvíslega kl.13:00. Veglegt lokahóf verður svo um kvöldið með tilheyrandi verðlaunaafhendingu í ÍR-heimilinu.
Þáttökugjald á mótinu er 3.000 kr. og innifalið í því er aðgangur á lokahófið sem og frímiði á seinasta heimleik ÍR í IEX deild karla gegn KR þann 22.mars.
Aðgangur að lokahófinu er 1.000 kr.
Allir árgangar frá 1900-1992 hafa keppnisrétt á mótinu.
Vinsamlega sendið fyrirspurnir/skráningu á netfangið [email protected]
Síðasti skráningardagur er 22. febrúar nk.