spot_img
HomeFréttirBikarúrslit kvenna 2012: Njarðvík bikarmeistari í fyrsta sinn

Bikarúrslit kvenna 2012: Njarðvík bikarmeistari í fyrsta sinn

Njarðvík tryggði sér sinn fyrsta bikarmeistaratitil í kvennaflokki með glæstum sigri á Snæfell í Laugardalshöllinni í dag.  Njarðvík hafði tröllatak á leiknum og náði mest 18 stiga forskoti í stöðunni 48-66 en Snæfell kom til baka og úr varð æsispennandi leikur.  Njarðvíkingar þurftu því að hafa fyrir sigrinum en Lele Hardy reyndist liðinu ótrúlega vel á lokamínútum leiksins.   
Fyrir liði Njarðvíkur fóru Lele Hardy og Shanae Baker-Brice sem áttu hreint út sagt stórkostlegan leik báðar tvær.  Shanae Baker-Brice var tilnefnd mikilvægasti leikmaður leiksins með ótrúlegar tölur, 35 stig, 16 fráköst, 9 stoðsendingar og 5 stolna bolta.  Lele Hardy var ekki langt á eftir henni með 26 stig og 24 fráköst.  Petrúnella Skúladóttir átti einnig mjög góðan dag í liði Njarðvíkur með 18 stig.  Í liði Snæfells var Kieraah Marlow atkvæðamest með 37 stig en næstar voru það Jordan Lee Murphree með 15 stig, 15 frákost og 5 stoðsendingar og Hildur Sigurðardóttir með 13 stig, 6 fráköst og 6 stoðsendingar.  
 
Snæfell setti upp í aggressíva svæðisvörn strax frá fyrstu mínútum leiksins og Njarðvík endaði því flestar sóknir á upphafsmínútunum á skoti nokkuð fyrir utan þriggja stiga línuna.  Það var ekki fyrr en eftir rúmar þrjár mínútur og í sjöttu tilraun sem það borgaði sig.  Snæfell tókst þó ekki að nýta sér þennan varnarleik því þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður var hnífjafnt, 8-8.  Njarðvík lærði svo fljótt að finna sér leiðir framhjá vörn Snæfellinga og höfðu náð 4 stiga forskoti þegar tæpar þrjár mínútur voru eftir af fyrsta leikhluta, 12-16.  Snæfell var bókstaflega að gefa Njarðvíkingum boltan trekk í trekk með því að blaka fráköstum til þeirra eða hreinlega að gleyma að fara upp í fráköstin.  Ingi Þór Steinþórsson tók því leikhlé og las yfir sínu liði.  Liðið virtist aðeins taka við sér og þegar fyrsta leikhluta lauk munaði þremur stigum á liðunum, 19-22.  Lele Hardy og Shanae Baker fóru hreinlega á kostum í fyrsta leikhluta og hirtu samanlagt 14 fráköst og settu 14 stig en Snæfells liðið eins og það leggur sig tók aðeins 11 fráköst í fyrsta leikhluta. 
 
Ekki skánuðu hlutföllin í frákastabaráttu leiksins Snæfelli í hag í öðrum leikhluta en þegar þrjár mínútur voru liðnar höfðu Njarðvíkingar tekið 24 fráköst á móti 12 fráköstum Snæfells, sóknarfráköst Njarðvíkur voru 13 af þessum 24.  Njarðvík var þó ekki að nýta sér þau tækifæri sem skildi og höfðu þá aðeins þriggja stiga forksot 26-29.  Snæfell hafði jafnað leikinn þegar annar leikhluti var hálfnaður 31-31.  Það var þó alltaf Njarðvík sem hafði frumkvæðið og um tveimur mínútum seinna höfðu þær náð 4 stiga forskoti á ný, 31-35. Ingi Þór Steinþórsson tók þá leikhlé fyrir Snæfell. Snæfell jafnaði svo leikinn stuttu seinna og komust yfir, 36-35, í fyrsta skiptið síðan í stöðunni 6-5.  Alda Leif Jónsdóttir fékk að setjast á bekkinn þegar rúm mínúta var eftir að fyrri hálfleik þegar hún fékk sína þriðju villu.  Það var hins vegar Njarðvík sem fór með forskotið inní hálfleikinn, 38-41.  
 
Stigahæst í liði Njarðvíkur í hálfleik var Shanae Baker með 24 stig og 8 fráköst en næstar voru Petrúnella Skúladóttir og Lele Hardy með 8 stig hvor.  Hardy hafði þó tekið 16 fráköst sem fróðir menn ættu að fletta upp í sögubókunum því annað eins hefur líklega ekki sést.  Í liði Snæfells var Kieraah Marlow stigahæst með 24 stig en næstar voru Hildur Sigurðardóttir með 7 stig, 4 fráköst og 4 stoðsendingar og Hildur Björg Kjartansdóttir með 4 stig.  
 
Njarðvík var eina liðið sem mætti til leiks á fyrstu mínútu seinni hálfleiks en þær skoruðu fyrstu 7 stig leikhlutans og höfðu náð 10 stiga forskoti, 38-48.  Alda Leif Jónssdóttir fékk slæma byltu þegar þrjár mínútur voru liðnar af þriðja leikhluta og þurfti að gera nokkuð hlé á leiknum á meðan hún fékk þá aðstoð sem hún þurfti.  Njarðvík gaf ekkert eftir og þegar þriðji leikhluti var hálfnaður höfðu þær náð 16 stiga forskoti, 44-60 og Ingi Þór Steinarsson tók leikhlé fyrir Snæfell.  Petrúnella og Hardy skelltu tveimur þristum á Snæfellingana á stuttum tíma og kom þeim í 18 stiga forskot, 48-66.  Snæfell tók þá góðan kafla og skoraði næstu 8 stig leiksins þangað til Sverrir Sverrisson tók leikhlé fyrir Njarðvík, 56-66.  Snæfell pressuðu boltan hátt og tókst að trufla sóknarleik Njarðvíkur nokkuð.  Þegar flautað var til loka þriðja leikhluta höfðu Njarðvíkingar 8 stiga forskot, 58-66.  
 
Snæfell galopnaði leikinn í upphafi fjórða leikhluta og skoruðu fyrstu 4 stigin og munaði því aðeins fjórum stigum á liðunum þegar rúmlega tvær mínútur voru liðnar af leikhlutanum, 62-66.  Njarðvík stóðs þó áhlaupið og höfðu náð forskotinu aftur upp í 7 stig þegar fjórði leikhluti var hálfnaður, 67-74.  Ingi Þór Steinþórsson tók þá leikhlé.  Snæfell var stuttu seinna búið að minnka muninn aftur niður í 3 stig, 71-74 og spennan í höllinni farin að magnast.  Stuðningsmenn Snæfells stóðu svo allir á lappir þegar Jordan Lee Murphree minnkaði muninn niður í 1 stig, 73-74.  Það var hins vegar Lele Hardy sem steig  upp fyrir Njarðvík og skoraði 5 stig í röð ásamt því að stela boltanum þegar 1 mínúta og 21 sekúndar var eftir, 75-81.  Njarðvíkingar spiluðu klukkuna í næstu sóknum og tóku þá áhættu að taka erfið skot þegar skotklukkan var að klárast.  Snæfell náði því að minnka muninn í 4 stig, 77-81, þangað til að Sverrir Þór Sverrisson tók leikhlé fyrir Njarðvík en þá voru 18 sekúndur eftir af leiknum og Shanae Baker-Brice á vítalínunni. Hún nýtti bæði vítin og höllin var staðin á fætur.  Snæfell tókst ekki að nýta næstu sókn og aftur var Baker send á línuna þar sem hún tryggði Njarðvík sér sinn fyrsta bikarmeistaratitil í körfuknattleik kvenna, 77-84.  
 
Karfan.is óskar körfuknattleiksdeild Njarðvíkur og Njarðvíkurliðinu innilega til hamingju með fyrsta bikarmeistaratitil kvenna í sögu Njarðvíkur! 
 
Umfjöllun: [email protected]
Fréttir
- Auglýsing -