Það var hins vegar annað Njarðvíkurlið sem mætti til leiks í öðrum leikhluta og Júlía Scheving Steindórsdóttir skoraði fyrstu stig Njarðvíkur úr hraðaupphlaupi. Njarðvík skoraði einni næstu 2 stig áður en Keflavík náði að svara. Þær sýndu baráttu og ákefð sem skilaði sér strax á töfluna. Keflavík svaraði þó fyrir sig og voru fljótlega farnar að auka við forskotið aftur því þær skoruðu næstu 12 stig leiksins og höfðu yfir 4-29. Njarðvík átti svo seinustu 2 stigin í fyrri hálfleik og því stóðu tölur 6-29 eftir fyrri hálfleik.
Stigahæst í liði Keflavíkur í hálfleik var Laufey Rún Harðardóttir með heil 17 stig en hún var sjóðandi heit fyrir utan þriggja stiga línuna með 60% nýtingu. Næstar á blað voru Kristrún Björgvinsdóttir með 3 stig og 6 fráköst og Kristrós Björg Jóhannsdóttir með 3 stig og 3 fráköst. Í liði Njarðvíkur voru þrír leikmenn jafnir með 2 stig, þær Þuríður Birna Björnsdóttir sem einnig hafði teki 8 fráköst, Kamilla Sól Sigfúsdóttir og Júlía Scheving Steindórsdóttir.
Keflavík hélt uppteknum hætti í þriðja leikhluta og juku forskotið hægt en örugglega. Það voru margir leikmenn að leggja sitt af mörkum og höfðu 8 leikmenn Keflavíkur skorað í leiknum þegar þriðja leikhluta lauk. Njarðvík tókst aðeins að skora 3 stig í þriðja leikhluta og munurinn var kominn upp í 20 stig þegar honum lauk, 9-39.
Njarðvík sýndi góða takta í fjórða leikhluta og bitu nokkuð frá sér. Það kom þó of seint og Keflavík tryggði sér öruggan sigur í leiknum með seinustu 6 stigum leiksins. Keflavík var vel að sigrinum komin og vann með 37 stiga mun, 16-53.
Stigahæst í liði Keflavíkur var Laufey Rún Harðardóttir með 21 stig og 5 fráköst en næstar voru Kristrós Björg Jóhannsdóttir með 7 stig og 4 fráköst og Indíana Dís Arnarsdóttir með 6 stig og 3 fráköst. Í liði Njarðvíkur var Þuríður Birna Björnsdóttir stigahæst með 8 stig og 14 fráköst en næst var Kamilla Sól Sigfúsdóttir með 3 stig og Júlía Scheving Steindórsdóttir átti einnig fínan leik með 2 stig og 8 fráköst.
Karfan.is óskar Keflavík innilega til hamingju með bikarmeistaratitilinn í 9. flokki kvenna árið 2012!!
Umfjöllun og mynd : [email protected]