Haukar juku við forskotið í öðrum leikhluta og höfðu náð því upp í 11 stig þegar hann var hálfnaður, 12-23. Njarðvíkingar tóku leikhlé stuttu seinna og tókst að bæta sinn leik nokkuð. Þeir náðu muninum niður í 2 stig í stöðunni 24-26 þangað til Haukar tóku leikhlé. Haukar höfðu verið klaufar og brotið á Njarðvík í opnum skotum sem Njarðvík nýtti sér vel. Þegar flautað var svo til hálfleiks höfðu Haukar eins stigs forskot, 26-27.
Stigahæstur í liði Hauka í hálfleik var Kári Jónsson með 9 stig og 5 fráköst, en næstir voru Kristján Sverrisson með 8 stig, 9 fráköst og 3 varin skot og Ívar Barja með 6 stig og 3 fráköst. Í liði Njarðvíkur var Magnús Már Traustason stigahæstur með 12 stig og 5 fráköst en næstir voru Kristinn Pálsson með 11 stig og 5 fráköst og Ragnar Helgi Friðriksson með 3 stig og 3 stoðsendingar.
Njarðvík byrjaði þriðja leikhluta af krafti og höðfu náð forskotinu í fyrsta skiptið í leiknum og höfðu yfir, 30-27 þegar þrjár mínútur voru liðnar af þriðja leikhluta. Haukar voru þó fljótir að svara fyrir sig og snúa taflinu sér í hag. Þeir skoruðu næstu 11 stig leiksins og höfðu 8 stiga forskot þegar Njarðvík tók leikhlé, 30-38. Þegar þriðja leikhluta lauk var munurinn kominn upp í 11 stig 34-45.
Njarðvíkingar áttu fyrstu 6 stig fjórða leikhluta og höfðu því minnkað muninn niður í 5 stig þegar fjórar mínútur voru eftir af leiknum, 40-45. Haukar hleyptu þeim þó ekki nær í bili og rúmri mínútu síðar tóku Njarðvíkingar leikhlé, 42-47. Hilmir Karl Hjörvarsson setti niður stóran þrist fyrir Njarðvík og minnkaði muninn niður í tvö stig, 45-47, þegar ein mínúta og 17 sekúndur voru eftir af leiknum. Hjálmar Stefánsson fór hins vegar langt með að tryggja Haukum sigurinn þegar hann fékk boltan, galopinn, undir körfunni og jók muninn upp í 4 stig, 45-49. Njarðvíkingar hentu boltanum frá sér í næstu sókn. Haukar náðu því muninum aftur upp í 6 stig, 45-51 og þannig stóðu tölur þegar flautað var til loka leiks.
Karfan.is óskar Haukum innilega til hamingju með bikarmeistartitilinn í 10. flokki karla árið 2012!!!
Umfjöllun: [email protected]
Mynd: [email protected]