Nú fyrr í dag lauk blaðamannafundi og verðlaunaafhendingu fyrir seinni hluta Iceland Express deild kvenna. Lele Hardy var kosin besti leikmaður seinn hlutans en Ingi Þór Steinþórsson sem heldur áfram að skrá söguna hjá Snæfell var valinn besti þjálfarinn.
Úrvalslið seinni hlutans var einnig valið og fór það val sem hér segir.
Hildur Sigurðardóttir Snæfell
Pálína Gunnlaugsdóttir Keflavík
Íris Sverrisdóttir Haukar
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir KR
Lele Hardy Njarðvík.
Dugnaðarforkur seinni hlutans var svo Jence Ann Rhoads hjá Haukum.