Á heimasíðu Keflavíkur má finna viðtal við Ragnar Gerald Albertsson, sonur Alberts Óskarssonar, en Ragnar er góður fulltrúi yngri kynslóðar Keflavíkurliðsins, fæddur árið 1993 og hefur komið við sögu í 18 leikjum Keflavíkur á tímabilinu. Hér má finna stutt inntak úr viðtalinu og krækju á viðtalið á heimasíðu körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.
Hvernig leggst þetta í þig?
"Þetta leggst bara mjög vel í mig sko, held að við eigum góðan sjéns í að ná langt".
Eigum við möguleika gegn Stjörnunni?
"Já, auðvitað eigum við sjéns, ef við spilum eins og menn þá er engin spurning að við förum áfram í næstu umferð".
Viðtalið í heild sinni má hér finna á heimasíðu körfuknattleiksdeildar Keflavíkur