Stjarnan lagði Breiðablik nú í hádeginu í úrslitaleik VÍS bikarkeppninnar í 9. flokks drengja, 66-59.
Karfan spjallaði við lykilleikmann úrslitaleiksins Guðlaug Heiðar Davíðsson eftir leik í Smáranum. Guðlaugur var frábær fyrir Stjörnuna í úrslitaleiknum, skilaði 25 stigum, 9 fráköstum, 3 stoðsendingum og 3 stolnum boltum.