Liðin skiptust á að skora fyrstu mínúturnar í öðrum leikhluta og var munurinn á liðunum oftar en ekki 7 stig. Varnarleikur beggja liða var að virka nokkuð vel og á tímabili skoraði hvorugt liðið í rétt tæplega 2 mínútur. Það var svo Stjarnan sem átti betri kafla undir lok fyrri hálfleiks og náðu muninum aftur niður í 3 stig rétt áður en flautað var til hálfleiks. Þegar leikurinn var hálfnaður stóðu því tölur 38-35.
Stigahæstur í liði Grindavíkur í hálfleik var J’Nathan Bullock með 13 stig og 4 fráköst en næstu menn eru Páll Axel Vilbergsson og Sigurður Þorsteinsson með 5 stig hvor. Í liði Stjörnunnar var það Justin Shouse sem var stigahæstur með 9 stig og 4 stoðsendingar en Keith Cothran var einnig með 9 stig og Renato Lindmets næstur með 8 stig.
Grindvíkingar náðu forskotinu aftur upp í 7 stig fljótlega í byrjun þriðja leikhluta en sem fyrr komu gestirnir alltaf til baka. Þegar á reyndi stigu menn upp og settu stórar körfur. Fannar Helgason setti stóran þrist og Keith Cotran fylgdi því eftir stuttu seinna með three point play sem minnkaði muninn í þrjú stig, 51-48. Forskot heimamanna hvarf þó aldrei alveg og þeir voru fljótir að ná því aftur upp. Liðið spilaði á köflum varnarleik af bestu sort sem vakti oftar en ekki mikla lukku hjá stuðningsmönnum liðsins. Þegar þriðja leikhluta lauk höfðu heimamenn 6 stiga forskot, 62-56.
Það munaði ekki miklu að Grindavík gengi á lagið og hreinlega kláraði leikinn fljótlega í fjórða leikhluta, þeir skoruðu fyrstu fjögur stigin í leikhlutanum og voru komnir með 11 stiga forskot stuttu seinna í stöðunni 72-59. Stemmingin var svakaleg hjá stuðningsmönnum Grindavíkur en allt kom fyrir ekki, Stjarnan gafst ekki upp og skoraði næstu ellefu stig gegn 2 stigum hjá Grindavík og allt í einu er leikurinn hnífjafn aftur, 74-70. Þrátt fyrir góðar tilraunir gestana tókst þeim þó ekki að komast nær en svo og Grindavík sylgdi sigrinum heim á lokamínútunum, 83-74.
Næsti leikur liðanna fer fram í Ásgarði í Garðabænum á föstudagskvöldið næstkomandi kl 19:15, leikur sem þú ættir ekki að láta framhjá þér fara.
Mynd : [email protected]