Haukar lögðu Breiðablik rétt í þessu í úrslitaleik VÍS bikarkeppni kvenna, 81-88.
Karfan spjallaði við lykilleikmann úrslitaleiksins Helenu Sverrisdóttur eftir leik í Smáranum. Helena var frábær fyrir Hauka í úrslitaleiknum, skilaði 19 stigum, 15 fráköstum, 9 stoðsendingum, stolnum bolta og vörðu skoti.