Búðirnar hefjast miðvikudaginn 6. júní og þeim lýkur að kvöldi mánudagsins 11. júní með lokahófi og verðlaunaafhendingu. Samhliða búðunum verður boðið upp á þjálfaranámskeið frá föstudeginum 8. júní til sunnudagsins 10. júní og verður ekki rukkað fyrir námskeiðið. Þarna er klárlega á ferðinni kjörið tækifæri fyrir metnaðarfulla þjálfara að slá tvær flugur í einu höggi, bæta við þekkingu sína og njóta töfra Vestfjarða!??Skráningar í búðirnar og á þjálfaranámskeiðið sendist á netfangið [email protected], einnig hægt að fá frekari upplýsingar hjá Guðjóni Þorsteinssyni í síma 896-5111.
Taka verður fram í skráningu:
* Nafn iðkenda og kennitölu
* Forráðamaður, netfang og símanúmer
* Félag (ekki nauðsynlegt)
* Hvað iðkandinn er skráður í (allur pakkinn, eða hlutar)
* Sérþarfir iðkenda (lyf, ofnæmi og annað)?
Verð fyrir þjálfun, gistingu og fullt fæði er 38.000 samtals.
Ef einstakir hlutar pakkans eru teknir út þá kostar hver eining:
Stakar búðir kosta kr. 18.000, gisting í 6 nætur 6.000 og fullt fæði 14.000.
Nánar um búðirnar hér