Mikilvægasti leikmaður fjögurra liða úrslitanna þetta árið var valinn Vassilis Spanoulis í liði Olympiacos en hann er því kominn í fríðan hóp fjögurra manna sem hafa hlotið þann heiður oftar en einu sinni. En aðeins Toni Kukoc, Dejan Bodiroga og Dimitris Diamantidis hafa hlotið þann heiður oftar en einu sinni auk Vassilis.
Lið Barcelona og Panathinaikos kepptu einnig í dag um þriðja sætið í keppninni þar sem Barcelona fór með þægilegan 5 stiga sigur, 69-74. Barcelona var komið með 11 stiga forskot í hálfleik eftir góðan annan leikhluta en Panathinaikos náði að minnka það forskot smám saman niður en það dugði ekki til. Í liði Barcelona var Marcelinho Huertast stigahæstur með 21 stig en næstu menn voru Joe Ingles með 13 og C.J. Wallace með 12 stig. Hjá Panathinaikos var það MVP euroleague frá því í fyrra, Dimitris Diamantidis sem fór fyrir sínu liði með 17 stig en næstu menn voru Aleks maric með 13 stig og David Logan með 11 stig.
Áhugasamir geta séð brot úr leikjunum og fréttir af úrslitahelginni á www.euroleague.com eða á www.euroleague.tv