spot_img
HomeFréttirSara, Martin og Valur í úrvalsliðum á mótinu

Sara, Martin og Valur í úrvalsliðum á mótinu

Þrír íslenskir leikmenn voru í dag valdir í úrvalslið á Norðurlandamótinu í Svíþjóð. Sara Rún Hinriksdóttir var valin í úrvalslið mótsins í flokki U16 ára kvenna en hún vakti verðskuldaða athygli fyrir vasklega framgöngu sína á mótinu.
 
Þá voru félagarnir Martin Hermannsson og Valur Orri Valsson einnig valdir í úrvalsliðið í flokki U18 ára karla sem hafnaði í 2. sæti NM í dag eftir stórt tap gegn Finnum.
 
Fréttir
- Auglýsing -