Svíar eru Norðurlandameistarar kvenna eftir sigur á Finnum en Ísland náði sínum besta árangri í sögunni á mótinu þegar kvennalandsliðið landaði bronsverðlaunum. Helena Sverrisdóttir var svo valin í úrvalslið mótsins.
Helena var stigahæst á mótinu með 20,75 stig að meðaltali í leik, 5 stoðsendingar, 7,5 fráköst og 22,25 að jafnaði í framlag. Frábær árangur hjá íslenska liðinu sem lagði Norðmenn og Dani, töpuðu naumlega gegn Finnum eftir hjartastyrkjandi leik og mættu svo ofjörlum sínum í Svíaleiknum.
KKÍ greindi vel frá mótinu á heimasíðu sinni sem og á Facebook síðu sinni og ef þú ert ekki vinur KKÍ á Facebook er löngu orðið tímabært að hysja upp sokkana og senda vinabeiðni.
Myndir/ www.kki.is
Lokastaðan á NM 2012
Nr. | Lag | K | S | T | P | Pts/PM | PPG/OPPG | Hjemme S/T | Borte S/T | Hjemme PPG/OPPG | Borte PPG/OPPG | Siste 5 | Siste 10 | Streak | Hjemme "streak" | Borte "streak" | JSK |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1. | Sverige | 4 | 4 | 0 | 8 | 325/221 | 81.3/55.3 | 3/0 | 1/0 | 78.7/56.0 | 89.0/53.0 | 4/0 | 4/0 | 4 | 3 | 1 | 0/0 |
2. | Finland | 4 | 3 | 1 | 6 | 314/284 | 78.5/71.0 | 2/0 | 1/1 | 81.5/63.5 | 75.5/78.5 | 3/1 | 3/1 | -1 | 2 | -1 | 1/0 |
3. | Island | 4 | 2 | 2 | 4 | 279/285 | 69.8/71.3 | 0/1 | 2/1 | 80.0/83.0 | 66.3/67.3 | 2/2 | 2/2 | -1 | -1 | 1 | 1/1 |
4. | Danmark | 4 | 1 | 3 | 2 | 268/305 | 67.0/76.3 | 0/2 | 1/1 | 60.0/80.5 | 74.0/72.0 | 1/3 |
|