Martin Hermannsson og Valencia lögðu Umana Reyer Venice í EuroCup í kvöld, 86-80.
Valencia er eftir leikinn í 1.-2. sæti deildarinnar með 11 sigra og 4 töp það sem af er rétt eins og Gran Canaria.
Á 28 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Martin 11 stigum, 2 fráköstum og 7 stoðsendingum.
Næsti leikur Martins og Valencia í keppninni er þann 23. mars gegn Bursaspor.