spot_img
HomeFréttirHelgi Már Magnússon ráðinn spilandi þjálfari KR - Gunnar til aðstoðar

Helgi Már Magnússon ráðinn spilandi þjálfari KR – Gunnar til aðstoðar

Helgi Már Magnússon hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla í körfuknattleik, og mun því bæði þjálfa og spila með liðinu í vetur. Gunnar Sverrisson, fyrrum þjálfari ÍR-inga, verður aðstoðarþjálfari liðsins. Samningur Helga og Gunnars er til tveggja ára. Helgi er eins og flestir vita uppalinn KR-ingur en hefur undanfarin þrjú tímabil leikið í Svíþjóð, síðast með 08 frá Stokkhólmi, en hann lék frábærlega með sænska liðinu í vetur og var með 13,3 stig og 5,5 fráköst að meðaltali í sænsku deildinni oghitti úr 41,4 prósent þriggja stiga skota sinna. Þetta kemur fram á heimasíðu KR, www.kr.is/karfa
Gunnar Sverrisson hefur mikla reynslu sem þjálfari og þjálfaði lið ÍR í Domino´s deildinni undanfarin tvö tímabil. Þá hefur hann einnig þjálfað Þór Akureyri, og var um tíma aðstoðarþjálfari John Rhodes í Breiðholtinu. Hann mun einnig þjálfa yngri flokka hjá KR.
 
„Við erum virkilega ánægðir með þessa ráðningu og Helgi var okkar fyrsta val, enda með mikla reynslu sem leikmaður og mikill leiðtogi. Þá vildum við fá innanbúðarmann í verkið og Helgi þekkir hvern krók og kima í DHL höllinni,“ segir Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR. „Það er líka gríðarlegur fengur í Gunnari sem aðstoðarþjálfara, en hann þekkir leikinn inn og út og fellur vel inn í KR fjölskylduna.“
 
„Ég er mjög stemmdur fyrir vetrinum. Það er virkilega gaman að koma heim og fá tækifæri til að þjálfa þennan sterka hóp. KR er svakalega metnaðarfullur klúbbur sem sést best á allri umgjörð og stemmingu í kringum liðið, og með þennan hóp sem við erum með núna þá höfum við að sjálfsögðu sett stefnuna á alla þá titla sem í boði eru,“ segir Helgi Már.
 
www.kr.is/karfa greinir frá.
  
Fréttir
- Auglýsing -