Ægir Þór Steinarsson og Acunsa GBC máttu þola tap í dag fyrir Palma í Leb Oro deildinni á Spáni, 85-67.
Eftir leikinn er Acunsa í 9. sæti deildarinnar með 12 sigra og 10 töp það sem af er tímabili.
Á rétt tæpri 21 mínútu spilaðri í leiknum skilaði Ægir Þór fimm stigum, frákasti, þremur stoðsendingum og stolnum bolta.
Næsti leikur Ægis og Acunsa er þann 16. mars gegn Huesca.