Jón Axel Guðmundsson og Crailsheim Merlins máttu þola tap í kvöld fyrir Wurzburg í þýsku úrvalsdeildinni, 91-74.
Eftir leikinn er Crailsheim í 8. sæti deildarinnar með 21 sigur og tólf töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 19 mínútum spiluðum skilaði Jón Axel 5 stigum, 3 fráköstum og 3 stoðsendingum.
Næsti leikur Jóns og Crailsheim í deildinni er þann 20. mars gegn Chemnitz Niners.