Martin Hermannsson og Valencia máttu þola tap í dag fyrir Joventut í ACB deildinni á Spáni, 76-68.
Eftir leikinn er Valencia í 5.-6. sæti deildarinnar með 62 stig líkt og Tenerife.
Á tæpum 22 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Martin 12 stigum, frákasti og 3 stoðsendingum.
Næsti leikur Martins og Valencia í ACB deildinni er þann 14. mars gegn Manresa.