spot_img
HomeFréttirÍR valtaði yfir Njarðvík í síðari hálfleik

ÍR valtaði yfir Njarðvík í síðari hálfleik

ÍR rétti úr kútnum í kvöld eftir tap gegn Þór Þorlákshöfn í síðustu umferð Domino´s-deildarinnar. Í kvöld komu Njarðvíkingar í heimsókn í Lengjubikar karla þar sem heimamenn í ÍR voru einráðir í síðari hálfleik og lögðu gesti sína örugglega 93-68.
 
Í fyrri hálfleik skiptust þeir Elvar Már Friðriksson og D´Andre Jordan Williams á glæsitilþrifunum. Báðir voru þeir með 17 stig í leikhléi og keyrðu vel upp leik sinna liða en heimamenn í ÍR leiddu 41-37 í leikhléi.
 
Að loknum þriðja leikhluta var enn nokkuð jafnt á með liðunum en í fjórða leikhluta hrökk ÍR í gang og unnu hann 30-13 þar sem þeir Hjalti Friðriksson, Nemanja Sovic og Williams leiddu ÍR-inga áfram og Njarðvíkingar hreinlega teknir í kennslustund.
 
 
 
Mynd/ Eric Palm sækir að körfu Njarðvíkinga í Hertz Hellinum.
  
Fréttir
- Auglýsing -