Í kvöld fór fram leikur Norköpping og Sundsvall í sænsku úrvalsdeildinni. Hlynur Bæringsson og Jakob Sigurðarson öttu þar kappi gegn Pavel Ermoljinski og hans félögum. Gestirnir frá Sundsvall höfðu frumkvæðið nánast allan leikinn en fyrir síðasta leikhlutann minnkuðu Höfrungarnir frá Norköpping muninn í 2 stig. Loka leikhlutinn var svo spennuþrunginn og þegar 5 mínútur voru til loka leiks náðu Norköpping loksins að komast yfir 69:66
Á lokasprettinum voru það hinsvegar gestirnir sem náðu að knýja sigur. Jakob Sigurðarson var stigahæstur allra í leiknum með 24 stig og Hlynur setti niður 13 stgi ásamt því að hrifsa 9 fráköst. Pavel Ermoljinski spilaði 25 mínútur og skoraði 7 stig og tók 6 fráköst.