spot_img
HomeFréttirHólmarar verða án Marlow í kvöld

Hólmarar verða án Marlow í kvöld

Topplið Snæfells í Domino´s deild kvenna fær botnlið Grindavíkur í heimsókn til sín í kvöld. Samkvæmt heimildum Karfan.is verða bæði lið án erlendra leikmanna. Grindvíkingar ráku Dellena Criner á dögunum og Kieraah Marlow, leikmaður Snæfells, er enn í tímabundnu leyfi af persónulegum ástæðum.
 
Hólmarar vonast til þess að fá Marlow sem fyrst aftur í sínar raðir en það á enn eftir að koma í ljós hvort hún nái toppslagnum í fimmtu umferð þegar toppliðin Keflavik og Snæfell mætast í Reykjanesbæ þann 24. október næstkomandi.
 
 
Fréttir
- Auglýsing -