spot_img
HomeFréttirFjölliðamót í Kennó: Tindastóll lagði Ármann

Fjölliðamót í Kennó: Tindastóll lagði Ármann

Keppni í 7. flokki karla í D-riðli stendur nú yfir í íþróttahúsi Kennaraháskólans en fyrsti leikur mótsins var viðureign heimamanna í Ármanni og Tindastóls. Kapparnir sýndu lipra takta og bæði lið voru að leggja allt í sölurnar í varnarleiknum.
 
Stólarnir sluppu með 38-31 sigur eftir að Ármenningar höfðu gert að þeim harða atlögu á lokasprettinum. Tindastólsmenn leiddu lungann úr leiknum en Ármenningar voru nærri því búnir að jafna metin en nokkur skot þeirra í fjórða leikluta dönsuðu af hringnum.
 
Mynd/ [email protected] – Frá leik Tindastóls og Ármanns í dag
 
  
Fréttir
- Auglýsing -