Snæfell silgdi heim 11 stiga sigri í Hveragerði 78-89 í Lengjubikarnum í kvöld. Eftir rólegt skor í fyrsta leikhluta þar sem Snæfell leiddi 15-17, tóku gestirnir völdin og fóru að setja skotin ofaní án mikillar móttstöðu frá Hamri. Bæði lið rúlluðu á flestum leikmönnum og háflgerð deyfð og áhugaleysi yfir báðum liðum.
33-45 í hálfleik gaf etv. Snæfelli von um þægilegan leik í síðari hálfleik og 28-18 fyrir Snæfell í 2.leikhluta. En aðeins kom spenna í þetta eftir hlé og Hjalti Valur setti strax 3 stig úr 3 vítum og smátt og smátt minnkaði munurinn. Minnstu munaði 58-59 þegar skammt lifði af 3ja leikhluta eftir 6 stig í röð frá heimamönnum en Sveinn Arnar fékk víti og setti bæði og vestanmenn leiddu með 3 stigum fyrir lokahlutann. Hamar vann 3.hlutann 25-16 og kveikti aðeins í vonum áhorfenda og leikmanna Hamars um spennandi leik en sú varð þó ekki raunin. Snæfell gerði það sem til þurfit í 4. leikhluta og vann hann sannfærandi 20-28 og leikinn með 11 stigum eins og áður sagði.
Ágætis æfingaleikur að baki þar sem undirritaður setur spurningarmerki við tilgang þess að hafa þessa keppni inni í Íslandsmóti. Eins er það nokkur fórnfýsi og elja hjá 1.deildar liðum að spila þessa leiki með minni hóp en flest öll úrvalsdeildarliðin og 1 erlendan leikmann móti 2 í þokkabót. Af því sögðu má hrósa neðrideildarliðunum að taka þátt og auðvitað vilja þau mæla sig við betri liðin.
Hjá heimamönnum skoraði Hollys 27 stig og tók 8 fráköst, Hjalt Valur 11 stig, Örn 9 / 8 fráköst og Ragnar og Lárus Jóns með sín 9 stigin hvor, Bjartmar 5 og Bjarni og Halldór með sín 4 stig hvor.
Hjá Snæfell var Jey Treet með 21 stig/8 frák., Pálmi setti 15 stig, Sveinn Arnar 12, McQueen 12/8 frák., Stefnán Karl 10, Nonni Mæju 9, Hafþór Ingi og Ólafur Torfa sín hvor 5 stigin.
Mynd úr safni – Eyþór Benediktsson
Umfjöllun/ Anton Tómasson