Jón Ólafur Jónsson einnig þekktur sem Nonni Mæju átti ekki í kvöld sinn fyrsta stórleik gegn KR en þeir eru orðnir ófáir. Í kvöld sallaði kappinn 27 stigum yfir röndótta og liðsfélagar hans fylgdu fast á eftir í stórsigri Snæfellinga í DHL-Höllinni. Nonni var að vonum kampakátur með frammistöðuna þegar Karfan.is náði tali af honum eftir leik.