Fjórum umferðum er nú lokið í Iceland Express deild karla. Nýliðar Skallagríms hafa opnað leiktíðina með látum og sitja á toppi deildarinnar ásamt Grindavík, Snæfell, Stjörnunni og Fjölni en öll þessi lið hafa sex stig.
Ómar Örn Ragnarsson var mættur á viðureign Skallagríms og ÍR í gærkvöldi og tók meðfylgjandi myndir.