Körfuknattleiksdeild UMFN hefur sagt upp samningi við Jeron Belin sem hefur leikið með karlaliði félagsins það sem af er hausti og hefur hann leikið sinn síðasta leik fyrir félagið. www.umfn.is greinir frá.
Á heimasíðu Njarðvíkinga segir ennfremur:
Án þess að fara djúpt í málin þá stóð leikmaðurinn ekki undir væntingum og þótti þjálfurum og stjórn það liðinu fyrir bestu að slíta samstarfinu.
Það liggur því fyrir að UMFN mun tefla fram einum Bandaríkjamanni á næstunni en von stendur til að nýr leikmaður verði kynntur til sögunnar á næstu dögum.
Mynd/ [email protected]