spot_img
HomeFréttirMBC á botn Bundesligunnar eftir tap heima

MBC á botn Bundesligunnar eftir tap heima

Hörður Axel Vilhjálmsson gerði 12 stig í gær þegar lið hans MBC datt á botn þýsku Bundesligunnar með 57-72 ósigri gegn Walter Tigers í gær. MBC hefur nú unnið einn leik í deildinni en tapað fimm.
 
Hörður lék í 26 mínútur í gær og skoraði 12 stig eins og áður segir. Hann var einnig með eitt frákast og eina stoðsendingu. MBC eru nýliðar í þýsku Bundesligunni en á síðustu leiktíð léku þeir í Pro A deildinni og höfðu þar nokkuð öruggan sigur í deildinni.
  
Fréttir
- Auglýsing -