spot_img
HomeFréttirIngibjörg Elva leggur skóna á hilluna

Ingibjörg Elva leggur skóna á hilluna

 ”Þetta var vissulega gríðarlega erfið ákvörðun en ég verð að hugsa til framtíðar varðandi mig sjálfa.” sagði Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir í dag við Karfan.is þegar hún staðfesti það að hún hefði ákveðið að leggja skóna á hilluna frægu endanlega.  ”Ég meiddist á ökkla í leik fyrir skömmu en hef náð mér af því en þetta eru þrálát meiðsl sem ég hef verið að glíma við síðan í mars sem hafa verið að plaga mig.  Þetta eru álagsmeiðsl og læknar segja þetta örvefsmyndun í hnénu.” 
 
Þessar fréttir eru svo sannarlega enn ein blóðtakan á liði tvöfaldra meistara UMFN sem hafa núna horft á eftir nánast öllu sínu byrjunarliði síðan í fyrra vetur.  ”´Ég tjáði stelpunum í liðinu mína ákvörðun á föstudag og það var vissulega erfitt en þær skilja mína afstöðu. Þær eiga eftir að spjara sig vel án mín, það kemur maður í manns stað segir einhverstaðar. ” bætti Ingibjörg Elva við. 
 
Ingibjörg sem 24 ára gömul mætti aftur til leiks í heimahaga í Njarðvík í fyrra eftir barnsburð og spilaði hún 13 leiki með liðinu og skoraði í þeim að meðaltali 5 stig.  Helsti styrkur Ingibjargar lá í varnarvinnu sinni en þar á Njarðvíkurliðið eftir að sakna hennar gríðarlega. 
Fréttir
- Auglýsing -