Keflvíkingar hafa sagt upp samningi sínum við bandaríska leikmanninn Kevin Glitner. Á heimasíðu Keflavíkur segir að Glitner hafi ekki þótt standa undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar.
Á heimasíðu Keflavíkur segir ennfremur:
Í stað hans hefur Keflavík samið við bakvörðinn Stephen McDowell en hann er 180 cm að hæð og getur bæði leikið sem tvistur og ás. Leikmaðurinn lék síðast í Kanada en þar áður hafði hann m.a. leikið með Loga Gunnarssyni í Solna Vikings í Svíþjóð. Stephen mun koma til landsins á næstu dögum.
www.keflavik.is