Eftir magnaða frammistöðu Þórs gegn Íslandsmeisturunum í síðustu umferð fengu liðsmenn Þórs ærlegan skell þegar liðið tók á móti Vestra í kvöld. Gestirnir að vestan léku við hvurn sinn fingur og höfðu fjörutíu og fjögra stiga sigur 73:117.
Þór Tv spjallaði við Bjarka Ármann Oddsson þjálfara Þórs eftir leik í Höllinni á Akureyri.
Viðtal / Guðmundur Ævar