spot_img
HomeFréttirMissir Dirk af Evrópukeppninni?

Missir Dirk af Evrópukeppninni?

Dirk Nowitski hefur verið að kljást við hné meiðsl nú í allan vetur og hefur ekkert komið við sögu hjá Dallas Mavericks.  Nú er svo komið að Dirk telji að Mark Cuban muni jafnvel ekkert vera svo hrifinn af þeirri hugmynd að Dirk taki þátt í Evrópukeppninni með Þýskalandi á næsta ári. “Það verður erfitt fyrir mig að komast til Slóveníu og spila með í keppninni þar. Sem stendur hlakka ég bara til að komast á völlinn og spila með félögum mínum í Dallas.” 
 
 
 
Dirk spilaði ekkert með Þýskalandi í undankeppninni núna síðastliðið sumar. Upphaflegt plan hjá Dirk var að komast á völlinn nú um miðjan desember og sú áætlun gæti jafnvel staðist. En bati hans eftir aðgerð á hné hefur verið hægur eða í það minnsta hægari en menn bjuggust við. 
Fréttir
- Auglýsing -