Lovísa Falsdóttir körfuknattleiks(kvenn)maður úr Keflavík söðlaði vestur um haf fyrir veturinn og mun hefja leik með Trinity skólanum á næstu dögum. Æfingar hafa staðið yfir síðastliðna mánuði og nú hafa þeir hjá “The Sentinel” sem er staðarblaðið í Cumberlink sýslunni hjólað í okkar stúlku og fjallað um veru hennar í miðri Pennsylvaníu.
Fram kemur í greininni að Lovísa eigi eftir að geta nýtt sér það að þriggjastiga línan færist nær körfunni þar sem að línan er töluvert nær en hér heima og í Evrópuboltanum. Lovísa greinir einnig frá því að hún hafi æft sportið frá því áður en hún man eftir sér og að hún halaði inn titlum með yngri flokkum. Hægt er að skoða greinina hér.