spot_img
HomeFréttirLakers glopruðu niður 17 stiga forystu

Lakers glopruðu niður 17 stiga forystu

Það virðist ætla að ganga hægt að koma Lakers “vélinni” í gang þetta árið. Miklar væntingar en lítill árangur fram að þessu.  En einu gullnu tækifærinu var kastað í sæinn í nótt þegar að Lakers heimsóttu Houston Rockets.  Lakers höfðu með góðum leik Kobe Bryant komið sér í þægilegt 17 stiga forskot en Houston liðinu tókst að klóra sig upp úr því ræsi og sigruðu að lokum. 107:105.  Það þurfti svo sem engar töfralausnir í þessu “comeback” hjá Lakers því “Hack á Howard” virðist vera það sem virkar hjá öllum liðum þessa dagana, þ.e. liðin senda Dwight Howard á línuna þar sem hann er að setja í vetur tæplega helming þeirra niður.  Hér er staðreynd fyrir ykkur, Howard er með 100% nýtingu í þriggjastiga skotum þessa leiktíðina. 
 
Meistarar Miami mættu helst til full afslappaðir til Washington og uppskáru eftir því. Washington komu, sáu og sigruðu meistaranna 105:101. Miami hafði fyrir þennan leik unnið 6 leiki í röð en voru í vandræðum allt kvöldið með þriggjastiga skotnýtingu sína (8-28) Lebron James skartaði sinni fyrstu þrennu þetta tímabilið (26-13-11) en sú þrenna dugði skammt.  Jordan Crawford kom af bekknum hjá Washington og sturtaði 22 stigum á meistarana. 
 
Öll úrslit næturinnar.
 
 
FINAL
 
7:00 PM ET
MIN
105
PHI
88
34 31 22 18
 
 
 
 
21 26 20 21
105
88
  MIN PHI
P Shved 17 Turner 19
R Howard 10 Richardson 7
A Barea 10 Holiday 9
 
Highlights
Game Stat FG% 3P% FT% REB TO
MIN 53.2 52 58.8 47
Fréttir
- Auglýsing -