Það var Eíríkur Ólafsson sem giskaði næstum því á rétt úrslit í Olsen Olsen leiknum okkar hér á Karfan.is. Nóvember leikurinn var viðureign KR og Grindavíkur sem mættust í 8. umferð Dominosdeild karla. Leikurinn fór 80:87 Grindavík í vil og var Eiríkur ansi nálægt réttum úrslitum því hann tippaði á 82:88. Það dugði honum til sigurs að þessu sinni.
Eiríkur býr í Borgarnesi og styður sitt lið þar Skallagrím. Ekki nóg með það að styðja liði sitt úr stúkunni heldur einn úr fjölskyldunni í átökunum á vellinum en það er Trausti Eiríksson. Eiríkur mun því í næstu heimsókn sinni í Reykjanesbæinn gæða sér á gómsætri máltíð frá Olsen Olsen.
Næsti leikur sem fólk getur tippað á er svo sem ekkert af verri endanum. El Classico í Reykjanesbæ þegar að Keflavík og Njarðvík mætast þann 13. des næstkomandi. Hægt verður að senda inn úrslit fram til kl 17:00 á leikdag.