Nokkru sinnum á vetri bjóða Njarðvíkingar stuðningsmönnum þeim sem skráðir eru í stuðningsmannaklúbbinn Grænu Ljónin til að koma fyrir leik og eiga fund með þjálfara teymi liðsins. Að auki eru léttar veitingar í boði. Þjálfarar fara þar yfir stöðu liðsins í vetur, liðskipan gegn liði Tindastóls og svo framhald vetursins.
Svo að lokinni tölu þjálfara fá stuðningsmenn að ræða hin ýmsu mál og spurja þjálfarateymið þær spurningar sem brenna á þeirra vörum. Vissulega flott framtak hjá þeim Njarðvíkingum en í kvöld fyrir leikinn gegn Tindastól eða um kl 18:30 í Boganum á efri hæðinni í Íþróttahúsi Njarðvíkur.