spot_img
HomeFréttirMcDowell segir skilið við Keflavík

McDowell segir skilið við Keflavík

 Stephen McDowell hefur í samráði við KKD. Keflavíkur rift samningi sínum við félagið og mun halda vestur til heimalands síns á morgun. Kappinn mun svo eftir áramót hefja nýtt ár með nýju liði á Kýpur.  Þetta staðfesti Jón Halldór Eðvaldsson aðstoðarþjálfari Keflavíkur við Karfan.is í kvöld. Stephen spilaði rúmar 20 mínútur gegn Njarðvík í kvöld og tryggði Keflvíkinga inn í framlengingu með flautukörfu. 
 
Stephen spilaði 4 leiki fyrir Keflavík og skoraði í þeim að meðaltali 17 stig og sendi 4.5 stoðsendingar. 
Fréttir
- Auglýsing -