??Körfuknattleikskona ársins 2012:?
1. sæti Helena Sverrisdóttir
?2. sæti Pálína Gunnlaugsdóttir
?3. sæti Hildur Sigurðardóttir??
Aðrar sem fengu atkvæði eru í stafrófsröð: Petrúnella Skúladóttir, Sara Rún Hinriksdóttir og Sigrún Ámundadóttir.
??Körfuknattleiksmaður ársins 2012:?
1. sæti Jón Arnór Stefánsson ?
2. sæti Hlynur Bæringsson
?3. sæti Jakob Örn Sigurðarson
??Aðrir sem fengu atkvæði eru í stafrófsröð: Haukur Helgi Pálsson, Hörður Axel Vilhjálmsson, Justin Shouse og Pavel Ermolinskji.
Tölfræði Helenu 2011-2012 í slóvakísku deildinni:?
9.6 stig á leik
?3.6 fráköst á leik
?2.2 stoðs. á leik??
Tölfræði Helenu 2011-2012 í Euroleague:?
7.1 stig á leik
?3.6 fráköst á leik?
0.7 stoðs. á leik??
Helena er nú á sínu öðru ári hjá Good Angels Kosice frá Slóvakíu en liðið er langsterkasta lið Slóvakíu og leikur í Meistaradeild Evrópu.? Helena varð fyrsta konan frá Íslandi sem spilar í Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð og er lið hennar um þessar mundir efst í sínum riðli í þeirri keppni. Lið hennar er á toppi slóvakísku deildarinnar að auki en þar hefur Helena leikið mjög vel. Hún hefur mest skorað meðal annars 18, 15 og 35 stig í leik fyrir sitt lið og hefur verið að fá stærra hlutverk í báðum keppnum.?? Helena var með betri leikmönnum á Norðurlandamóti kvenna sem fram fór í Osló sl. vor þar sem Ísland hafnaði í 3. sæti. Hún var valin í úrvalslið mótsins. Helena leiddi mótið í stigum skoruðum að meðaltali (20.8), stoðsendingum að meðaltali (5.0) og var þriðja í fráköstum að meðaltali (7.5).
??Jón Arnór Stefánsson · CAI Zaragoza, Spáni
?Jón Arnór Stefánsson er á sínu öðru ári með liði sínu Zaragoza í ACB-deildinni á Spáni og hefur verið lykilmaður liðsins á þeim tíma. Lið CAI Zaragoza gekk vel á síðasta ári i deildinni og rétt missti af sæti í úrslitakeppninni í lok tímabilsins. Jón Arnór leikur sem fyrr lykilhlutverk í vörn og sókn liðsins og er iðulega inná þegar mest á reynir. Liðið er um þessar mundir í 7. sæti af 18 liðum og hefur gengið vel á fyrri helming tímabilsins. ??Jón Arnór var frábær með landsliði Íslands í sumar sem tók þátt í erfiðu verkefni þar sem leiknir voru 10 leikir á 30 dögum gegn gríðarlega sterkum körfuknattleiksþjóðum. Íslenska liðið stóð sig vel í mörgum leikjum og var Jón Arnór leiðtogi liðsins. Hann varð að keppni lokinni í 9. sæti yfir stigahæstu menn í keppninni að meðaltali með 18.5 stig í leik.??
Tölfræði Jóns Arnórs á tímabilinu 2012-2013:
?8.2 stig á leik
?2 fráköst á leik
?1.3 stoð á leik???
Körfuboltafólk ársins frá árinu 1998:
?1998: Helgi Jónas Guðfinnsson og Anna María Sveinsdóttir?
1999: Herbert Arnarson og Guðbjörg Norðfjörð?
2000: Ólafur Jón Ormsson og Erla Þorsteinsdóttir?
2001: Logi Gunnarsson og Kristín Björk Jónsdóttir?
2002: Jón Arnór Stefánsson og Birna Valgarðsdóttir
?2003: Jón Arnór Stefánsson og Signý Hermannsdóttir?
2004: Jón Arnór Stefánsson og Birna Valgarðsdóttir?
2005: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir?
2006: Brenton Birmingham og Helena Sverrisdóttir
?2007: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir?
2008: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
?2009: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir?
2010: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir?
2011: Jakob Örn Sigurðarson og Helena Sverrisdóttir?
2012: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir??
Oftast valin Körfuboltamaður ársins:
*?9 Jón Arnór Stefánsson (2002, 2003, 2004, 2005, 2007, 2008, 2009, 2010, 2012)?
8 Helena Sverrisdóttir ( 2005, 2006, 2007, 2008, 2009, 2010, 2011, 2012)?
4 Jón Kr. Gíslason (1987, 1989, 1992, 1993)?
3 Kristinn Jörundsson (1973, 1975, 1977)
?2 Jón Sigurðsson (1976, 1978)?
2 Valur Ingimundarson (1984, 1988)?
2 Guðmundur Bragason (1991, 1996)
?2 Anna María Sveinsdóttir (1994, 1998)
?2 Birna Valgarðsdóttir (2002, 2004)?
1 Jakob Örn Sigurðarson (2011)??
* Valið hefur verið tvískipt síðan 1998 en frá 1973 til og með 1997 var aðeins valin einn aðili, karl eða kona, en síðan þá hafa verið valin Körfuknattleiksmaður og Körfuknattleikskona ársins.