Þrír leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld þar sem Pavel Ermolinskij og höfrungarnir frá Norrköping höfðu öruggan 71-91 sigur á Jamtland Basket á útivelli.
Pavel var ekki í byrjunarliðinu en lék þó mest allra í liði Norrköping og gerði 13 stig, tók 8 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Þá var hann einnig með 4 stolna bolta.
Með sigrinum í kvöld eru Norrköping og Solna Vikings jöfn í 4.-5. sæti deildarinnar með 20 stig en Sundsvall Dragons vermir sem fyrr toppsætið í Svíþjóð með 28 stig.