Í dag lýkur 14. umferð í Domino´s deild kvenna með viðureign Vals og Njarðvíkur en leikurinn hefst kl. 14:00 í Vodafonehöllinni. Þá mætast Augnablik og Reynir Sandgerði kl. 14:30 í Kórnum en það er annar leikurinn í 16-liða úrslitum Poweradebikarkeppninnar.
Í 1. deild kvenna mætast Stjarnan og Hamar í sannkölluðum toppslag kl. 16:00 í Ásgarði. Hamar er eina taplausa lið deildarinnar en Stjarnan er í 2. sæti og hefur aðeins tapað einum leik svo ljóst er að hart verður barist í Garðabæ.
Í 2. deild karla eigast svo við Afturelding og Patrekur en leikurinn fer fram að Varmá kl. 16:30.
|