Í dag fara fram fimm leikir í 16-liða úrslitum Poweradebikarkeppni karla og hefst fjörið kl. 16:00 þegar Stjarnan tekur á móti KFÍ kl. 16:00 í Ásgarði. Liðin mættust í síðustu umferð Domino´s deildarinnar þar sem úr varð magnaður spennuslagur.
Það verður þó að teljast ansi athyglisvert að þrír leikir eru á boðstólunum í dag í bikarkeppninni þar sem um ræðir lið sem einnig mættust í síðustu umferð Domino´s deildarinnar fyrir jól. Stjarnan og KFÍ mættust í deild á Ísafirði en leika nú í Ásgarði í dag, í deildinni mættust einnig Fjölnir og Grindavík en þau mætast aftur í dag og þá í Röstinni. Í Stykkishólmi verður endurtekið efni þar sem Snæfell tekur á móti Þór Þorlákshöfn en í deildinni á fimmtudag unnu Þórsarar sinn fyrsta leik í deildarkeppni úrvalsdeild í Stykkishólmi.
Leikir dagsins í 16 liða úrslitum Poweradebikarsins
16:00 Stjarnan – KFÍ
17:00 Haukar b – Njarðvík
19:15 Grindavík – Fjölnir
19:15 Keflavík – Hamar
19:15 Snæfell – Þór Þorlákshöfn
Mynd/ Eyþór Benediktsson – Frá leik Snæfells og Þórs úr Þorlákshöfn síðastliðinn fimmtudag. |