Njarðvíkingar eru komnir í 8-liða úrslit Poweradebikarkeppninnar eftir öruggan 57-112 sigur á Haukum b í Schenkerhöllinni. Þar með eru fjögur lið komin áfram í keppninni en nú standa yfir þrír leikir og lýkur svo 16-liða úrslitum keppninnar á morgun.
Þau lið sem komin eru í 8-liða úrslit:
Valur, Reynir Sandgerði, Stjarnan, Njarðvík
Leikir eftir:
Grindavík – Fjölnir
Keflavík – Hamar
Snæfell – Þór Þorlákshöfn
Haukar – ÍR (á morgun)
Mynd/ Oddur Birnir Pétursson var stigahæstur í liði Njarðvíkinga í dag