Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza máttu þola tap í kvöld gegn Gran Canaria í ACB deildinni á Spáni, 76-86.
Eftir leikinn er Zaragoza í 13. sæti deildarinnar með átta sigra og þrettán töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 18 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi átta stigum.
Næsti leikur Tryggva og Zaragoza er þann 13. mars gegn Tenerife.