Góðgerðarleikur Njarðvíkinga heldur áfram að gefa af sér gott efni. Við gerðumst svo lukkulegir í gær að verða vitni að meisturunum að störfum þegar úrvalslið Njarðvíkinga hélt sinn lokafund fyrir leikinn gegn meistaraflokki Njarðvíkur. Friðrik Ingi Rúnarsson, Gunnar Þorvarðarson og Valur Ingimundarson lögðu þá á ráðin.
Hér á eftir fer sókn sem erfitt er að verjast, planið er teiknað upp í búningsklefanum og síðar framkvæmt lið fyrir lið strax í fyrstu sókn leiksins…þetta gera og geta bara refirnir í bransanum.