Kempan Darrell Flake er Gatorade-leikmaður tíundu umferðar í Domino´s deild karla. Flake hafði nauman sigur í kjöri ljósmyndara og fréttaritara Karfan.is en nokkrir voru til kallaðir að þessu sinni. Flake gerði magnaða flautukörfu í sigri Þórs í Stykkishólmi þegar þriðja leikhluta lauk.
Justin Shouse fékk einnig glás af atkvæðum fyrir frammistöðu sína á Ísafirði og Hjörtur Hrafn Einarsson fékk einnig atkvæði fyrir rándýrt stig af vítalínunni og hans eina í leik Njarðvíkur gegn Keflavík. Tíunda umferðin var ansi litrík og menn seldu sig dýrt sem veit á gott fyrir okkur áhorfendur upp á framhaldið að gera.
Hér er svo upptaka úr Hólminum af skotinu en boltinn sést því miður ekki fara ofan í: