Valsmenn hafa samið við Jaleesa Butler og mun hún því fylla skarð Alberta Auguste sem lék með liðinu fyrir áramót. Ágúst Sigurður Björgvinsson þjálfari Valskvenna staðfesti þetta við Karfan.is. Körfuknattleiksáhugafólk hér á Íslandi þekkja vel til Butler sem áður hefur leikið með Hamri og Keflavík hérlendis.
Butler lék 31 leik með Keflavík á síðasta tímabili og var þar með 20 stig og 15 fráköst að meðaltali í leik. ,,Hún stóð sig mjög vel þegar hún spilaði hjá mér í Hamri og okkar samstarf gekk vel,” sagði Ágúst við Karfan.is.
Nýja árið hjá Val hefst með stórleik gegn Snæfell í Stykkishólmi á laugardag en Valur er í 4. sæti deildarinnar með 14 stig en Snæfell í 2. sæti með 22 stig.
Mynd úr safni/ VF.is – Butler með Keflavík í leik gegn Val á síðasta tímabili.