spot_img
HomeFréttirKnicks skelltu Spurs

Knicks skelltu Spurs

Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. San Antonio Spurs fengu skell í stóra eplinu þegar New York batt enda á sjö leikja sigurgöngu Texasbúa og svo lágu Denver Nuggets gegn Minnesota á heimavelli.

New York 100-83 San Antonio Spurs
Carmelo Anthony var með 23 stig, 8 fráköst og 3 stoðsendingar í liði Knicks og J.R. Smith kom með 20 stig af bekknum. Hjá Spurs var Gary Neal með 12 stig af bekknum og kumpánarnir Tony Parker og Tim Duncan voru báðir með 11 stig. Pablo Prigioni kom sterkur inn af bekknum hjá Knicks í nótt með 6 stig og 9 stoðsendingar og ein þeirra á J.R. Smith var af dýrari gerðinni sem endaði með svaðalegri troðslu.
 
 
Denver 97-101 Minnesota
Sex liðsmenn Minnesota voru með 11 stig eða meira í leiknum, Jose Barea og Alexey Shved voru báðir með 17 stig. Kevin Love lét ekki tvennuna eftir liggja með 12 stig og 17 fráköst. Hjá Denver voru Ty Lawson og Kosta Koufos báðir með 16 stig.
  
Mynd/ Pablo Prigioni fór mikinn gegn Spurs í nótt.
Fréttir
- Auglýsing -