Jón Axel Guðmundsson og Crailsheim Merlins máttu þola tap í kvöld fyrir Bonn í þýsku úrvalsdeildinni, 101-96.
Eftir leikinn er Crailsheim í 7. sæti deildarinnar með 12 sigra og 8 töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 7 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Jón Axel tveimur stigum og stoðsendingu.
Næsti leikur Jóns og Crailsheim er þann 12. mars gegn Wurzburg.