spot_img
HomeFréttir8-liða úrslit kvenna klárst næstu helgi

8-liða úrslit kvenna klárst næstu helgi

Þrír leikir fóru fram í gær í 8-liða úrslitum Poweradebikarkeppni karla þar sem Grindavík, Snæfell og Stjarnan tryggðu sig inn í undanúrslitin. Einn leikur er eftir en það er viðureign Keflavíkur og Njarðvíkur sem fram fer í Toyota-höllinni á morgun, þriðjudag. 8-liða úrslit kvenna hefjast á miðvikudag og lýkur þeim næstu helgi.
 
Í 8-liða úrslitum kvenna mætast Hamar og Stjarnan á miðvikudag svo það er ljóst að lið úr 1. deild kvenna verður í undanúrslitum. Föstudaginn 11. janúar mætast KR og Keflavík, á laugardag eigast við Þór Akureyri og Snæfell og á sunnudag mætast Grindavík og Valur.
  
Fréttir
- Auglýsing -