spot_img
HomeFréttirSnæfell leggur inn kæru vegna Butler

Snæfell leggur inn kæru vegna Butler

Snæfell hefur lagt inn kæru til Körfuknattleikssambands Íslands vegna ólöglegs leikmanns sem Valur notaði í leik liðanna í úrvalsdeild kvenna á laugardag. Mbl.is greindi frá.
 
Í frétt mbl.is segir einnig:
 
Valur mætti til leiks með nýjan bandarískan leikmann, Jaleesu Butler, sem áður hefur spilað með Hamri og Keflavík hér á landi.
 
Friðrik Ingi Rúnarsson, framkvæmdastjóri KKÍ, staðfestir í samtali við mbl.is að Butler hafi ekki verið komin með leikheimild og því verið ólögleg á laugardag.
Valur vann leikinn örugglega, 81:64, en fastlega má búast við því að Snæfelli verði dæmdur sigur, 20:0, þegar aga- og úrskurðarnefnd hefur farið yfir málið.
 
Butler skoraði 18 stig og tók 19 fráköst í sigri Valskvenna.
 
Fréttir
- Auglýsing -