Víkurfréttir greina frá því í dag að Njarðvíkingar gætu verið án Friðriks Stefánssonar og Marcusar Van annað kvöld þegar liðið mætir Keflavík í 8-liða úrslitum Poweradebikarkeppninnar. Leikmennirnir hafa ekki æft með liðinu síðan á föstudag eftir Snæfellsleik þeirra Njarðvíkinga.